gamalt.is

Persónuvernd

Á gamalt.is eru upplýsingar um búðir: nafn, heimilisfang, opnunartími og sími. Við birtum bara það sem búðirnar hafa sjálfar gert opinbert, og heimildin fylgir hverri færslu.

Sumir markaðir eru reknir af einstaklingum, og þá geta símanúmer eða nafn talist persónuupplýsingar. Ef þú vilt láta leiðrétta eða fjarlægja eitthvað um þig eða þína búð, sendu póst á gamalt@gamalt.is og við gerum það innan fárra daga. Þú getur líka leitað til Persónuverndar (personuvernd.is).

Síðan notar engar vafrakökur. Við teljum heimsóknir með Cloudflare Web Analytics, sem safnar engum persónuupplýsingum og fylgist ekki með þér á aðrar vefsíður.

Eini þjónustuaðilinn sem við notum er Cloudflare, sem sér um hýsingu, tölfræði og áframsendingu tölvupósts.

Upplýsingarnar eru teknar saman eftir bestu getu en geta verið rangar eða úreltar. Hringdu á undan þér ef þú ferð langa leið.